Vel heppnuð auglýsingaherferð ?


Framan á Morgunblaðið í morgun var límdur auglýsingasnepill frá Heimsferðum.

" Morgunblaðið í samstarfi við Heimsferðir, býður áskrifendum sínum frábært tilboð í þriggja nátta helgarferð í beinu flugi til Búdapest 4.maí. " Síðan er borgin dásömuð og get ég tekið undir það allt saman þ.s. ég dvaldi þar í nokkra daga fyrir 2 árum.

Það sem vakti hinsvegar athygli mína var að fyrsta frétt á mbl.is í morgun var " Óeirðir brutust út í Búdapest " og mynd með sem við fyrstu sín virðist sína Búdapest í ljósum logum !

Jafnframt er sagt að 100.000 manns hafi tekið þátt í óeirðunum !

Gaman væri að heyra frá Heimsferðum hve margir hafa bókað sig í þessa ferð í morgun ?


mbl.is Óeirðir brutust út í Búdapest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband