Grafalvarlegt ef satt reynist !

Sauðsvartur almúginn hefur auðvitað ekkert fengið að vita ! Komið inn af götunni og fengið þau ráð hjá sínum ráðgjafa; studd af línuritum og vaxtatöflum; að hagstæðast væri að taka myntkörfulán.  Kæmi mér ekkert á óvart að almennir ráðgjafar bankanna hafi ekkert vitað heldur.

Það er einnig háalvarlegt að þessi stöðutaka vann gegn undirstöðuatvinnuvegi þjóðarinnar; sjávarútveginum sem var að vinna með krónunni sem hann hefur ætið gert.´Útflutningur sjávarafurða skapar gjaldeyri og  styrkir þannig krónuna.

Þegar rannsókn á falli bankanna er lokið kæmi ekki á óvart að þessar stöðutökur bankanna hafi átt ríkan þátt í falli þeirra. Græðgin hefur sem sagt étið þá innann frá þar til komið var opið svöðusár sem ekki gréri og ekki var hægt að eiga við á nokkurn hátt. 

 


mbl.is Veittu fólki lán en veðjuðu á veikingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég var boðaður á fund í Glitni í Jan. 2008, þar var nauðað í mér að skipta lánum mínum í myntkörfulán.
Ég hváði við og sagði: Er ekki allt að fara fjandans til... starfsmaðurinn sagði: sei sei nei, smá problem en allt verður í góðu fyrr en varir og þú getur eignast íbúð´þína miklu fyrr.
Ég sagði að ég teldi að allt væri á niðurleið og hafnaði þessu... .gaurinn lét sig ekki, volaði og vældi í mér, en ég gaf mig ekki.. á leiðinní út kallaði hann á eftir mér:: En að breyta 50% af lánum?
Yea rite... ég labbaði út

DoctorE (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 09:14

2 Smámynd: Kristján Þór Gunnarsson

Það eru því miður til allt of mikið af svona staðreyndum. Ég tel nánast alveg víst að almennur ráðgjafi í bankanum hafi ekkert vitað hvað var í raun að gerast.

Hversu sársaukamikið það myndi reynast; verður að finna leið til að eiðrétta þetta !

Kristján Þór Gunnarsson, 12.1.2009 kl. 09:23

3 Smámynd: Guðmundur Björn

Er þetta ekki líka spurning um spá aðeins í hlutunum og hugsa sjálfstætt, eins og Doctor E gerði?  Með ólíkindum að fólk hafi verið að taka erlend lán í nóvember/desember í fyrra, þegar t.d. Pétur Blöndal var að segja að hún væri alltof sterk (GVT var í 110 eða svo) og fjölmiðlar skrifuðu líka um það.  Kannski ekki of mikið?

Fólk hefur bara þurf að fara inn á www.sedlabankinn.is og skoða gengisþróun viðkomandi gjaldmiðils svona 5 til 6 ár aftur í tímann. Smá skrifborðsrannsóknarvinna getur hjálpað mikið við ákvörðunartöku.

Myntkörfulán er bara fyrir fólk sem getur tekist á við miklar sveiflur í efnahagi.

Guðmundur Björn, 12.1.2009 kl. 14:46

4 Smámynd: Kristján Þór Gunnarsson

Það er auðvitað hárrétt athugasemd hjá þér Guðmundur.

Málið er að almenningur hefur hingað til treyst sínum banka og sínum þjónustufulltrúa og þ.a.l. ekki lagt í sjálfstæða athugun. Mismunurinn á að taka lán í erlendri mynt svo og Íslenskum krónum var svo mikill. Bent var á að ef um langtímalán væri að ræða þá mætti gengið falla um 20-30 % ; samt væri hagstæðara að taka lán í erlendri mynt.

Allt annað gilti um lán til styttri tíma.

Kristján Þór Gunnarsson, 12.1.2009 kl. 15:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband